
Breiðafjarðarnefnd 2025-2029
Ný Breiðafjarðarnefnd var skipuð 27. október 2025. Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn. Sveitarfélögin sem liggja að Breiðafirði tilnefna fjóra fulltrúa, Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur á Vesturlandi og Vestfjörðum tilnefna einn sameiginlega og Minjastofnun tilnefnir einn fulltrúa. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar, sem jafnframt gegnir formennsku. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. [...]
Umsagnir Breiðafjarðarnefndar árs 2025
Allar umsagnir Breiðafjarðarnefndar frá árinu 2025 eru komnar á heimasíðu nefndarinnar. Nefndin fékk samtals 13 umsagnabeiðnir á árinu og voru þær allar vegna skipulagsmála við Breiðafjörð.
